SÉRHÖNNUÐ EININGAHÚS

HÚSTÝPA 1 - 2 - 3

Sérhönnuðu einingahúsin samanstanda af þremur vel útfærðum hústýpum í mismunandi stærðum. Öll eru þau hönnuð með sveigjanleika og fjölbreyttar þarfir fjölskyldna að leiðarljósi. Þótt hver hústýpa hafi sitt eigið yfirbragð eiga þær það allar sameiginlegt að sækja innblástur í íslenskt landslag, náttúruleg form og aðstæður sem einkenna íslenskt umhverfi.

Við hönnun húsanna var áhersla lögð á birtu, rýmiskennd og tengingu við umhverfið. Efnisval er vandað og endingargott, valið með það að markmiði að húsin eldist fallega og standist kröfur nútímans um gæði og notagildi. Náttúruleg dagsbirta gegnir lykilhlutverki í hönnuninni, meðal annars með vel útfærðum gluggalausnum sem færa ljós og himinsýn inn í daglegt líf.

Hver hústýpa er hugsuð sem traustur grunnur sem hægt er að aðlaga að óskum viðskiptavina. Skipulag, stærðir, efnisval og útfærslur eru sveigjanleg og unnin í nánu samráði við hvern viðskiptavin, þannig að endanlegt hús endurspegli bæði lífsstíl og þarfir íbúa.

Hústýpa 1

Hönnun hússins sækir innblástur í íslenskt landslag og náttúrulegt form. Þakformið endurspeglar fjallasýnina í kring og gefur byggingunni sterka, en um leið látlausa ásýnd sem fellur vel að umhverfinu.Húsið er alls um 100 m² brúttó, þar af 69 m² á fyrstu hæð og 31 m² á annarri hæð. Skipulagið er hannað með hagkvæmni, birtu og þægindi að leiðarljósi.

Hústýpa 2

Látlaust og nútímalegt hús sem mótað er af íslenskri náttúru og umhverfi. Húsið fellur eðlilega að umhverfi sínu og nýtur sín jafnt í opnu landslagi sem og í grónu byggðarmynstri. Húsið er á einni hæð og er 71 m² brúttó, með vel útfærðu og hagkvæmu skipulagi.

Hústýpa 3

Hústýpa 3 er stærsta hústýpan í seríunni (138 m² brúttó) oghentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldur sem vilja rúmgott, vel skipulagt heimili með sterka tengingu við útirými og náttúru. Hönnunin sækir, líkt og aðrar hústýpur, innblástur í íslenskt landslag, með skýru formmáli, brotnu þakformi og jarðbundinni ásýnd sem fellur vel að umhverfinu.

Scroll to Top