Hústýpa 3

Hústýpa 3 er stærsta hústýpan í seríunni (138 m² brúttó) og hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldur sem vilja rúmgott, vel skipulagt heimili með sterka tengingu við útirými og náttúru. Hönnunin sækir, líkt og aðrar hústýpur, innblástur í íslenskt landslag, með skýru formmáli, brotnu þakformi og jarðbundinni ásýnd sem fellur vel að umhverfinu.

Húsið er á einni hæð og einkennist af skýru og hagnýtu skipulagi þar sem alrýmið er hjarta heimilisins. Alrýmið er um 44 m² og sameinar eldhús, borðstofu og stofu í opna og bjarta heild. Stórar gleropnanir tengja rýmið beint við pall og útisvæði, sem gerir húsið sérstaklega hentugt fyrir samveru, gestaboð og daglegt fjölskyldulíf.

Í tengslum við alrýmið er rúmgóð borðstofa, 22 m², sem nýtist vel fyrir stærri matarboð og samverustundir. Dagsbirta er í forgrunni í allri hönnun hússins, með vel staðsettum gluggum sem tryggja björt og notaleg rými og sterka tengingu við umhverfið.

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, tvö þeirra 10 m² og eitt 13 m², sem hentar vel sem hjónaherbergi. Tvö baðherbergi, hvort um sig 5 m², auka þægindi og gera húsið vel fallið fyrir fjölskyldur eða gestakomur. Að auki eru forstofa, 6 m², gangar, samtals um 6 m². Hústýpa 3 býður einnig upp á útigeymslu, 9 m², sem tengist útisvæðinu og eykur notagildi hússins enn frekar.

Efnisval er vandað og tímalaust, þar sem áhersla er lögð á endingargóðar lausnir og hlýlegt yfirbragð.

Hönnunin er hugsuð sem sveigjanlegur grunnur og hægt er að aðlaga stærðir, skipulag og útfærslur að óskum og þörfum hvers viðskiptavinar. Þú getur bókað fund með okkur þér að kostnaðarlausu til að fara yfir þínar hugmyndir.

Scroll to Top