Hústýpa 2

Hústýpa 2 er látlaust og nútímalegt hús sem mótað er af íslenskri náttúru og umhverfi. Húsið fellur eðlilega að umhverfi sínu og nýtur sín jafnt í opnu landslagi sem og í grónu byggðarmynstri.

Húsið er á einni hæð og er 71 m² brúttó, með vel útfærðu og hagkvæmu skipulagi. Í miðju hússins er rúmgott alrými, um 33 m², þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda heild. Stórir gluggar tryggja góða dagsbirtu og sterka tengingu við náttúruna.

Dagsbirta leikur lykilhlutverk í hönnun hússins, þar sem Velux bakgluggar eru nýttir til að færa náttúrulegt ljós ofan frá inn í rýmið. Þeir skapa birtu og hlýlega stemningu og gera alrýmið og svefnrýmin bæði opnari og notalegri, óháð afstöðu hússins eða árstíma.

Tvö svefnherbergi eru í húsinu, annars vegar 10,7 m² og hins vegar 11,3 m², sem henta vel sem hjónaherbergi, barnaherbergi eða gestarými. Baðherbergið er 3,9 m² og er staðsett með þægilegu aðgengi frá alrými og svefnrýmum, ásamt gangi, 1,9 m², sem tengir rýmin á einfaldan og skilvirkan hátt.

Skipulag hússins leggur áherslu á opið og bjart rými, þar sem hver fermetri er nýttur með markvissum hætti. Efnisval og form eru tímalaus, með áherslu á gæði, einfaldleika og notalegt yfirbragð.

Hústýpa 2 hentar sérstaklega vel fyrir einstaklinga, pör eða minni fjölskyldur sem leita að vel hönnuðu, nettu en rúmgóðu heimili í nánum tengslum við náttúruna.

Hönnunin er hugsuð sem sveigjanlegur grunnur og hægt er að aðlaga stærðir, skipulag og útfærslur að óskum og þörfum hvers viðskiptavinar. Þú getur bókað fund með okkur þér að kostnaðarlausu til að fara yfir þínar hugmyndir.

Scroll to Top