FLEX HÚSIN

BASIC - FAMILY - PANORAMA - CUSTOM

Flex House – Basic er lítið einbýlishús sem getur líka verið stórt, en í sinni stærstu mynd heitir það Flex House Panorama. Basic-útfærslan er um 119 m² en því fylgir einnig yfirbyggt bílastæði. Fyrir þá sem vilja meira pláss má bæta við bílskúr, herbergjum og turni. Með öllum viðbótum verður húsið um 269 m².

Hönnun hússins tekur mið af skandinavískum einfaldleika og íslensku veðurfari. Þannig er t.d. þakið sem virðist vera flatt útfært með góðum halla og allt vatn er tekið í rennur fyrir utan útveggina. Húsið gerir ráð fyrir aðkomu norðanmegin og útivistarsvæði sunnanmegin sem tengist húsinu með stórum gluggum og glerhurðum.

Að innan eru rýmin opin og björt með hjarta hússins í kringum arinhleðslu, með eldstæði bæði innandyra og utan. Eldhús, borðstofa og stofa tengjast sem ein heild. Góð skyggni eru yfir útisvæðinu og má því snæða þar þó dropi úr lofti og gert er ráð fyrir bekkjum, heitum potti, grillsvæði og kampavínsvegg í öllum útfærslum.

Flex House - Basic

Flex House – Basic (119 m²), er algjör draumur sem sumarafdrep fjölskyldunnar í sveitinni. Þarna er allt sem þarf til að slaka á í fallegu umhverfi. Fjölskyldurýmið, með eldhúsi, borðstofu og stofu, er stórt og opið. Svefnherbergin tvö eru þægileg, björt og rúmgóð. Húsinu fylgir yfirbyggt bílastæði og geymsla sem aðgengileg er frá bílastæðinu og garðinum.

Flex House - Family​

Flex House – Family (201 m²), er fjögurra svefnherbergja einbýli með bílskúr og aukaherbergi með sérinngangi. Í þessari útgáfu eru alls 3 baðherbergi og því þægilegt hús fyrir fjöruga fjölskyldu.

Flex House - Panorma

Flex House – Panorama (269 m²), er útfærsla með útsýnisturni. Í þessari útgáfu er 68 m² þakherbergi með 51 m² yfirbyggðum svölum. Á landsvæðum þar sem fjallasýn er mikil getur turninn orðið uppáhalds íverustaður fjölskyldumeðlima.

Scroll to Top