HUGMYNDIR AF HÚSUM
Flex House – Basic er lítið einbýlishús sem getur líka verið stórt, en í sinni stærstu mynd heitir það Flex House Panorama. Basic-útfærslan er um 119 m² en því fylgir einnig yfirbyggt bílastæði. Fyrir þá sem vilja meira pláss má bæta við bílskúr, herbergjum og turni. Með öllum viðbótum verður húsið um 269 m².
Hönnun hússins tekur mið af skandinavískum einfaldleika og íslensku veðurfari. Þannig er t.d. þakið sem virðist vera flatt útfært með góðum halla og allt vatn er tekið í rennur fyrir utan útveggina. Húsið gerir ráð fyrir aðkomu norðanmegin og útivistarsvæði sunnanmegin sem tengist húsinu með stórum gluggum og glerhurðum.
Að innan eru rýmin opin og björt með hjarta hússins í kringum arinhleðslu, með eldstæði bæði innandyra og utan. Eldhús, borðstofa og stofa tengjast sem ein heild. Góð skyggni eru yfir útisvæðinu og má því snæða þar þó dropi úr lofti og gert er ráð fyrir bekkjum, heitum potti, grillsvæði og kampavínsvegg í öllum útfærslum.
Sérhönnuðu einingahúsin samanstanda af þremur vel útfærðum hústýpum í mismunandi stærðum. Öll eru þau hönnuð með sveigjanleika og fjölbreyttar þarfir fjölskyldna að leiðarljósi. Þótt hver hústýpa hafi sitt eigið yfirbragð eiga þær það allar sameiginlegt að sækja innblástur í íslenskt landslag, náttúruleg form og aðstæður sem einkenna íslenskt umhverfi.
Við hönnun húsanna var áhersla lögð á birtu, rýmiskennd og tengingu við umhverfið. Efnisval er vandað og endingargott, valið með það að markmiði að húsin eldist fallega og standist kröfur nútímans um gæði og notagildi. Náttúruleg dagsbirta gegnir lykilhlutverki í hönnuninni, meðal annars með vel útfærðum gluggalausnum sem færa ljós og himinsýn inn í daglegt líf.
Hver hústýpa er hugsuð sem traustur grunnur sem hægt er að aðlaga að óskum viðskiptavina. Skipulag, stærðir, efnisval og útfærslur eru sveigjanleg og unnin í nánu samráði við hvern viðskiptavin, þannig að endanlegt hús endurspegli bæði lífsstíl og þarfir íbúa.