Stofnað 2009

Með yfir áratug af reynslu í að byggja hágæða einingahús.

Verkefni allt að 1.000m kr.

Við höfum reynslu af stórum og smáum verkefnum.

Áhersla á gæði og þjónustu

Vönduð vinna og áreiðanleg þjónusta í forgangi.

Áfangatengdar greiðslur

Greiðsluáætlanir sem henta þínum þörfum og veita öryggi.

Framkvæmda áætlanir

Nákvæmar og tímasettar áætlanir fyrir hverja framkvæmd.

Arno er umboðsaðili HusLine á Íslandi

Öll einingahúsin eru framleidd af HusLine í Litháen og uppfylla bæði íslenska byggingarreglugerð og strangan norskan staðal (SINTEF).

Þjónusta

Við bjóðum upp á alhliða þjónustu sem nær yfir alla þætti byggingarferlisins, frá fyrstu hugmynd til fullbúins húss.

Hönnun á húsi

Við vinnum með arkitektum til að hanna hús sem uppfyllir þínar óskir og þarfir, ásamt því að sjá um allar teikningar.

Rafmagn, pípulagnir og hitakerfi

Full uppsetning á öllum raflögnum, pípulögnum og hitakerfum innan hússins.

Hönnun á húsi

Við sjáum um að húsið verði fullinnréttað, með gólfefnum og málun að þínum óskum.

Byggingaferlið

Hér getur þú séð skref fyrir skref ferilið með Arno til að fá dauma húsið þitt

1

Fyrirspurn

Fyrsta skrefið er að hafa samband við okkur og deila hugmyndum þínum og þörfum.

2

Forhönnun

Við vinnum með þér að þróun frumhönnunar sem endurspeglar sýn þína og uppfyllir allar kröfur.

3

Tilboð

Eftir forhönnun færðu nákvæmt tilboð byggt á þínum óskum og vali á efnum og lausnum.

4

Samningur

Gerum bindandi samning sem tryggir báðum aðilum öryggi og skýrleika í ferlinu.

5

Framleiðsla húss

Framleiðsla eininganna fer fram í verksmiðju og er síðan sent til Íslands.

6

Uppsetning

Fagmenn setja húsið hratt og örugglega saman á byggingarstað.

7

Úttekt og afhending

Síðasta úttekt fer fram og húsið er formlega afhent þér, tilbúið til flutnings.

FRÁ HUGMYND AÐ HEIMILI - ÞAR SEM TRAUST MÆTIR GÆÐUM

Arctic North ehf. var stofnað árið 2009 og hefur byggt upp yfir 30 ára reynslu í byggingariðnaði á Íslandi. Við erum leiðandi í þróun og smíði einingahúsa, sem sameina nýstárlega hönnun, sjálfbærni og hagkvæmni. Húsin eru forsmíðuð en ekki forhönnuð, sem þýðir að hægt er að aðlaga þau að þínum stíl og þínum þörfum. Með sterka áherslu á gæði, traust og einfaldleika, bjóðum við lausnir sem henta nútíma kröfum og íslenskum aðstæðum.

Hvert verkefni hefst á vandaðri og persónulegri ráðgjöf. Við vinnum náið með þér að hönnun, skipulagi og efnisvali fyrir nýja einingahúsið þitt, með áherslu á gæði og langtíma hugsun.

Í samstarfi við reynda arkitekta og aðra fagaðila tryggjum við faglegar útfærslur og traustar forsendur í hverju verkefni. Þú getur valið heildarþjónustu frá ARNO og treyst því að við höfum umsjón með ferlinu frá upphafi til enda.

AF HVERJU EININGAHÚS?

Einingahús úr timbri eru nútímaleg, hagkvæm og umhverfisvæn lausn fyrir þá sem vilja vandað húsnæði án óþarfa tafa. Með framleiðslu í verksmiðju er byggingarferlið skilvirkt og hagkvæmt, sem tryggir gæði og styttir byggingartíma verulega samanborið við hefðbundnar byggingaraðferðir.

Timbur er náttúrulegt og endurnýjanlegt byggingarefni sem bindur kolefni og stuðlar að betri loftgæðum innanhúss. Timburhús bjóða upp á hlýlegt og notalegt umhverfi, góða einangrun og stöðugt inniloftslag sem eykur bæði vellíðan og orkunýtni.

Einingahús veita jafnframt mikinn sveigjanleika í hönnun. Hægt er að laga stærð, skipulag og útlit að þörfum hvers og eins – hvort sem um ræðir íbúðarhús, sumarhús eða atvinnuhúsnæði. Þar að auki eru einingahús auðveld í stækkun eða aðlögun síðar meir.

Samstarfsaðilar

HusLine

AKA Studio

Arkibygg

Verksýn

S.Saga

S.Saga

Einar Beinteins

Volt

Scroll to Top