Hústýpa 1
Hústýpa 1 er vönduð og nútímaleg hönnun sem sækir innblástur í íslenskt landslag og náttúrulegt form. Þakform hússins endurspeglar fjallasýnina í kring og gefur byggingunni sterka, en um leið látlausa ásýnd sem fellur vel að umhverfinu.
Húsið er alls um 100 m² brúttó, þar af 69 m² á fyrstu hæð og 31 m² á annarri hæð. Skipulagið er hannað með hagkvæmni, birtu og þægindi að leiðarljósi.
Á fyrstu hæð er bjart og opið alrými, um 20 m², sem sameinar stofu, borðstofu og eldhús í samfelltri heild. Stórir gluggar opna rýmið að útsýni og náttúru, á meðan Velux bakgluggar í húsinu tryggja ríkulega dagsbirtu djúpt inn í rýmið. Þeir gegna lykilhlutverki í upplifun hússins, þar sem náttúrulegt ljós og himinsýn verða hluti af daglegu lífi. Á hæðinni eru einnig forstofa (9,1 m²), baðherbergi (6,4 m²) og tvö svefnherbergi, hvort um sig 7,7 m², sem henta vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnurými.
Á annarri hæð er rúmgott svefnloft, um 28,4 m², sem nýtist sem hjónasvíta eða fjölnota rými. Loftið opnast niður í alrýmið og myndar þar tvöfalda lofthæð, sem í samspili við Velux bakgluggana eykur birtu og rýmiskend.
Efnisval er vandað og tímalaust, þar sem áhersla er lögð á endingargóðar lausnir og hlýlegt yfirbragð.
Hönnunin er hugsuð sem sveigjanlegur grunnur og hægt er að aðlaga stærðir, skipulag og útfærslur að óskum og þörfum hvers viðskiptavinar. Þú getur bókað fund með okkur þér að kostnaðarlausu til að fara yfir þínar hugmyndir.